Lokatónleikar í Laugarborg.
Heimismenn fluttu verkið "Upp skalt á kjöl klífa" á heimaslóðum þeirra höfðingja, Sighvatar á Grund og Hannesar Arnar Blandon. Aðsókn var ágæt og viðtökur góðar. Þetta mun vera síðasta sýningin á þessu verki og ekki amalegt að ljúka því á þennan hátt í tónlistarhúsi þeirra Eyfirðinga.
En við komum alltaf aftur því næsti viðburður sem kórinn tekur þátt í er einnig í Eyjafirði, nánar tiltekið í Glerárkirkju á Akureyri þar sem við munum halda hefðbundna karlakórstónleika, þrungna af karlmennsku, með okkar ágætu félögum í Karlakór Reykjavíkur þann 6. mars næstkomandi kl. 15:00. Síðar um kvöldið endurtökum við leikinn í Miðgarði og viku síðar í Langholtskirkju.
Kórfélagar eru minntir á aðalfundinn á mánudagskvöldið 15.feb.
